Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Rock Werchter!

24. febrúar 2009 klukkan 20:05
Sælinú...

ég get EKKI beðið eftir sumrinu!!
Ég er búin að bóka flug til Amstó, tökum lest til Blegíu, smellum okkur á Rock Werchter!! hell yeah baby...
BÚJAAA!!!

Ég ætla að sjá:

Coldplay



Metallica



The Killers



Kings of Leon



The Prodigy



oasis með þeim Gallagher bræðrum jákvæðu, bjartsýnu og skemmtilegu WÚÚHÚÚ



Emilíana Torrini



katy perry




jason mraz

Jason Mraz

ooooooog fleiri!! veeeejjj...rærærææææææææ...

mange tak..

Nýársblogg...rærærææ

21. janúar 2009 klukkan 19:09
Sælinú fólks!

Gleðilegt ár og allt það!
ég hef ákveðið að koma með hið árlega annáls blogg en mun hafa það í styttri kanntinum. Ég er búin að reyna 2x að gera rosa flott blogg og það klúðraðist í bæði skiptin svo ég nenni ekki að leggja á mig þá vinnu í 3ja sinn og svo klúðrast það bara aftur.. en allt er þegar þrennt er ekki satt??

Anywho..árið 2008 leit svona út hjá mér í stuttu máli ")

-í janúar fluttum ég og mamma mín í kópavoginn og þar með kvaddi ég mörg góð og skemmtileg ár í Vogahverfinu. Þar kláraði ég grunnskólann og menntaskólann og kynntist fullt af frábæru fólki sem ég hreinlega elska of mikið! Ég elska líka vogana.. it´s tha hood baby!! Gotta love it... en kópavogurinn er líka gott hverfi og mikil gleði vei vei veiij..

-ég byrjaði að vinna á leikskólanum Urðarhóli, sem er eitt af þeim atriðum sem standa uppúr á liðnu ári! Betra vinnuandrúmslofti hef ég aldrei kynnst! Það er með ólíkindum hvað þetta var frábær vinna... virkilega góð, falleg og krúttuleg knúsubörn sem mér þykir óendanlega vænt um og starfsfólkið algerlega frábært! Alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast og allir hjálpfúsir og guð minn hvað ég gæti talað endalaust um Urðarhól sem vinnustað... á hverjum degi fékk ég VIRKILEGA gott að borða, mátti leggja mig í klukkutíma með knúsubörnunum sætu OG vera úti í 3 tíma á dag og það var EKKI slæmt á góðum sumar- og sólardögum... fer nú af og til að kíkja til allra og það er alltaf gaman!!

-á árinu fór ég 3x til útlanda ") 2x fór ég til Spánar eða Torreveija og Mallorca baby... ótrúlega skemmtilegar ferðir og náði að brúnka mig örlítið sem er alltaf frábært.. 3ja ferðin var svo til Finnlands og það var ÆÆÐISLEG ferð! Mér finnst alltaf rosa spennandi að koma á staði sem ég hef aldrei farið áður til og get ekkert nema gott, flott og jákvætt sagt um Finnland! Sú ferð stendur mér ofarlega í huga sem atburður á árinu 2008... gleði gleði endalaus..

-ég hóf nýtt nám, eða Ferðamálafræði við Háskóla Ísland og sé allsekki eftir því! Hér hef ég fundið mína hillu og ætla mér að vera á henni... spennandi og áhugaverð fög, flottir kennarar og FRÁBÆRIR krakkar! Jeeij... alltaf eitthvað að gerast eins og vísindaferðir eða ferðalög út úr bænum, partý niðrí skóla og heima hjá Ólöfu minni oft!!! Þakka fyrir mig Ólöf.. þú ert flottasti gestgjafi ever!! Mér gekk obboslega vel í prófunum og er bara helvíti sátt við þetta allt saman!!

-í febrúar þreytti ég inntökupróf fyrir leiklistardeild LHÍ ") ég komst ekki inn en mikið rosalega var þetta skemmtileg lífsreynsla! Fullt af áhugaverðu fólki og skemmtileg verkefni að takast á við yfir inntökuprófs-daginn OG að hafa staðið aaaaalein fyrir framan leikara og leikstjóra og formann LHÍ eða eitthvað blabla og flutt mín erindi! Er helvíti ánægð með þetta! Þetta var eitt fyrsta markmið ársins sem ég var löngu búin að setja mér og ég reyndi allavegana við það...

-talandi um leikhús þá fór ég á allnokkrar sýningar! Leikhús er uppáhaldið mitt af öllu... ég elska að fara í leikhús!! 2008 sá ég m.a. Fló á skinni, Fólkið í blokkinni, Dauðasyndirnar og Sumarljós ") ætla mér að fara einnig á nýja árinu okkar og á ég nú þegar miða á Milljarðamærin snýr aftur og Söngvaseiður...veit ekki með gæði söngvaseiðs en það kemur í ljós ;)

Ég er búin að telja upp það helsta og árið leit nokkurn veginn svona út hjá mér...


Ég er líka með nokkur plön fyrir 2009! Þau koma nú hvert af fætur öðrum plönin eftir því sem tíminn líður en til að byrja með ætla ég að LÆRA, LÆRA, LÆRA fjandinn hafi það nú!! Er í fögum sem ég er viðkvæm fyrir og það þýðir bara að ég þarf að leggja aðeins meira á mig og það skal gert! Í sumar ætla ég HELST að vinna áfram á leikskólanum ef það er hægt, en annars ætla ég að ferðast um Ísland. Upprunalega langaði mig að fara hringinn en ef ekki verður úr því þá langar mig allavegana að fara eitthvað aðeins lengra en Hveragerði og Selfoss hehe ;) ;) langar svo að læra á landið mitt, ganga fjöll og firnindi, sofa í náttúrunni, læra nöfn og örnefni og kunna fyrir mér í vegum og leiðum og allt heila klabbið! Það er markmið... kannski fyrir næstu ár bara held ég!
Ég ætla líka að skella mér á tónlistarfestival í Belgíu með crewinu mínu fallega!! Rock Werchter baby...BÚJAAA!!! jii hvað ég hlakka til uuuuusss...
meira hef ég svosem ekki í bili...... það kemur bara með tímanum en þetta er ágætis byrjun.

Jaaaá.. ég ætlaði að hafa þetta stutt blogg en mig langar að setja inn myndir frá 2008... aðallega fyrir mig en lika Sunnu og Sigrúnu sem eru einu manneskjurnar sem lesa bloggið mitt hahaa... love you guys!!

Here it goes.. ") árið 2008 hjá mér í myndum

Á milli jóla og nýárs 2007 skelltum við okkur, crewið mitt Sunna, Elín og Sigrún, í sumarbústaðaferð í Úthlíð. Hér erum við Sunna á leiðinni eins ferskar og það gerist



Hér erum við svo allar obboslega sætar í Perlu-partý í Úthlíð.. þessi mynd er helvíti góð



Í febrúar tók ég myndir af útsýninu úr nýju íbúðinni okkar mömmu ") það er ekki keypt í Hagkaupum skal ég segja ykkur






Páskarnir voru snemma 2008 eða í mars og þá var mikið páskafjör og veisla heima hjá mér eins og er árlega.. þá kom litli frændi í heimsókn og ég mátti skreyta hann svona fínt



Við Sigrún skipulögðum svo brunch hjá Tótu minni í mars og þar var mikið borðað og gleðin við völd!! Ég var búin að hlakka svo til að fá að sjá kettlinginn hennar Tótu og þegar á hólminn var komið var ég bara drullu-skíthrædd við hann..





Við gunni í miðbæjargöngu innanum rónana á fellgum mars-degi..vááá væmið!!



Í byrjun mars var svo árshátíð Kópavogsbæjar og leikskólann minn vantaði EKKI á svæðið.. ég og ragga frænka í fyrirpartý sem var hið glæsilegasta

Kjötsvipurinn góði og flotti..úff sexyyy



Stjörnuhóls-gengið..þvílíkar pæjur..ekki hægt að segja annað!

Í fyrirpartýinu var páfagaukur sem lék lausum hala og fuglar eru ekki minn tebolli nema þeir séu í búrum! Hann kom right at me og mér brá svo að ég klessti á vegg og fékk þennan líka fína marblett á handlegginn!



Ég, Linda, Annika og Sigrún fórum í kynningarpartý á broadway þar sem allt flaut í fríu áfengi og sígarettum..eurobandið spilaði og rassinn var dansaður og sunginn af!



Þar var líka mikið af skrítnu liði eins og þessir gaurar..






Og sérstaklega þessi skvísa sem var in love with annika. Svipurinn á vinkonu minni góðu segir meira en þúsund orð..



Óvissuferð Urðarhóls var farin í apríl og það var óhemju skemmtilegt kvöld!
ég og ragga frænka í rútunni þvílíkt spenntar..



Við enduðum í flottum sumarbústað rétt hjá Keflavík þar sem var grillaður fiskur FÁRÁNLEGA gott, drukkið endalaust, dansað og sungið frameftir öllu... frábær ferð með frábæru fólki!







Mér þykir ótrúlega vænt um þessa ljótu mynd því mómentið var rosa fyndið (ekta got to be there) en eftir nokkra bjóra, hvítvín og breezera þá er mjög erfitt að taka myndir..



Litla systir og litli frændi í smáralind krúttípúttí mússímúúúúss...



Laufey bauð mér í partý til sín og þetta var eina skiptið á árinu sem ég sá hana... úff.. áramótaheit! Hitta laufey oftar..



Drykkjupartý hjá Nönnu einnig í apríl þar sem mikill og fagur söngur lék um stúdentaíbúðirnar á Eggertsgötu frameftir kvöldi og voru sleifar notaðar til að gera sönginn tilþrifameiri en Aldís var glæsileg þar á ferð... miiikið drukkið og mikið gaman!






Í maí fórum við gunni í okkar fyrstu dagsferð saman til Hveragerðis..fáránlega spennandi haha! Ógeðslega gott veður þennan dag og ég ætlaði að sýna honum gamla fjallahringinn minn sem er svona hálftíma, þrjú korters labb og enda svo í sundlauginni.. við týndumst á leiðinni og það endaði með því að gunni sýndi mér réttu leiðina.. úff *vandræðalegt*, en við erum svo miklir amatörar í þessu að við gleymdum myndavél og nesti... komumst í sundlaugina við illan leik og fengum okkur svo pizzu í hveró sem ég MÆLI MEÐ hún var ekkert smá góð.. uuss

Oooj í maí var mikið um köngulær í kringum mig.. bjakk





Og hundurinn hans pabba, hún Tinna, gaut 3 mússímúss sætum hvolpum og ég lét mig ekki vanta í heimsókn..ofnæmisgepillinn sjálfur



Júní er alltaf góður mánuður og við mamma skelltum okkur til Torreveija, fengum íbúð hjá Kristínu góðvinkonu mömmu og ferðin var ÆÆÐI og fáránlegt afslappelsi.. ég las 3 heilar bækur í ferðinni og ein var huges! Vorum í sólbaði á hverjum degi, fengum okkur gott að borða, kíktum á ströndina og eitthvað rooosa flott hótel í nágrenninu, fögnuðum 17. Júní þar sem mættu um 100 íslendingar, rosa gaman en FÁRÁNLEGA heitt!! Allt að 40 stigum..  gaman að segja frá því að ég sá Stefán Hillmarsson bara út á götu í bænum sem við vorum í en hann er eitthvað fyrir utan torreveija... jaaaá heimurinn er lítill!







Heima voru svo skemmtilegir og flottir tónleikar með sigurrós og Björk..veeeij.. létum okkur ekki vanta á þá




 

Júli var ekki af verri endanum! Fór í tvær utanlandsferðir með stuttu millibili en ég byrja á mallorca..
Um leið og ég settist inn í flugvél gat ég ekki beðið eftir því að fá mér kokteil á hótelinu og njóta hans í hlýju miðjarðarhafsloftslaginu sem leikur um spán. Við komum á hótelið og ég beint í kokteilinn..valdi mér virkilega girnilegan með kiwi-skrauts-sneið sem ég hef mikið ofnæmi fyrir nú svo ég tek hana bara af.. kem aðeins við augað á mér og enda svona..



Bara eins og Hitch... það tók mig 2 daga að jafna mig algerlega..fáránlegt! en það var líka eintóm gleði og hamingja á Viva Palmanva MÆLI EINDREGIÐ með þessu hóteli og þessum stað!





Sæti sæti, litli frændi hans gunna..algert krútt!



Hópmynd..allir á leið út að borða á BESTA mexicoska stað sem ég veit um!!





Blak í lauginni



Ég og Þurý í góðum gír.. ákvað að fá mér kokteil síðasta kvöldið mitt



Steini að gera grín af mér.. haha elska þessa mynd



Ég hafði svo 2 daga á milli þess sem ég kom heim frá mallorca og að ég færi aftur út til Finnlands baby! Á þessum 2 dögum hitti ég Guðný mína sem var á landinu en hún býr í dk.. æskuvinkona mín ")



Til Finnlands ég kem og leiðin út var SWEET! Fékk saga class sæti án þess að  hafa borgað fyrir það eða biðja sérstaklega um það.. og á almenna farrýminu voru svona 100 finnskar 10 ára skátastelpur svo ég var aldeilis glöð með þetta..
Ég á rútustoppustöðinni að finna rútuna sem átti að flytja mig til Tampere.. þetta var svaka ferðalag")



Ein búin að koma sér vel fyrir hjá Lindu og Anniku..uuuss hvað þetta var góð ferð!



Bestu burgerarnir í Finnlandi..mmmmm



Skelltum okkur í tívolíið ógeðslega gaman!!..Við Annika flottar að bíða eftir svaðalegum rússíbana..



Þetta er ekki bara tívolí heldur er höfrungasýning og svona aquarium sem við kíktum á FÁRÁNLEGA flott..



Við sátum úti í góða veðrinu og drukkum bjór heima hjá Anniku






Smelltum okkur í sumarhús fjölskyldu hennar sem er SVO flott, og rosalega fallegt svæðið í kring. Vatn og skógur og virkilega rómó stemning!



Finnar eiga skrítin orð og mörg sem þýða alveg eins og á íslensku t.d. rúsína og prinsessa haha.. hér er PIKA skiltið góða.. en það þýðir samt ekki píka í alvörunni

Á síðasta degi fórum við í Helsinki og skoðuðum okkur um..virkilega falleg borg og margt um að vera, skoða og sjá ") takk fyrir mig sætu stelpur!!!!



Jebb svo tek ég bara ekkert myndir fyrr en í september-október... er orðin ROSA léleg í að taka myndir, hreinlega nenni því ekki lengur! Enn eitt áramótaheitið..taka fleiri myndir..
Hér hitti ég Ryslinge-píurnar mínar á Vegamótum. Fengum okkur gott að borða og töluðum lengi saman... ")






Hér koma nokkrar góðar vísindaferðamyndir frá haustönninni..















Árinu var svo lokað með pompi og prakt, fínerís dinner heima og djamm með stelpunum mínum góðu... love you guys..good times good times...







Takk í bili..
Over and out... Magga

p.s. ég skrifaði bloggið EKKI svona klesst.. heldur með greinarskilum og fíneríi...en það kemur barasta ekki þannig út... "/ kann ekki að laga..

fokking ljóta blogg!!!!!

18. janúar 2009 klukkan 17:14
er búin að gera 2 risa tilraunir að gera flott blogg....
og það klúðrast alltaf eftir 2 tíma vinnu og nú er ég HÆTT!!!!
nenni þessu bara hreint ekki meir.... GLATAÐ!!

Próf.. AWÚHÚÚ

01. desember 2008 klukkan 00:51
sælinú fólks!

ég fer í 3 próf, 11., 15. og 17. des

þessa helgi notaði ég í jólagjafakaup og er NÆSTUM búin með allt whúppídúúú..
en frá og með morgundeginum byrjar lestrar- próf undirbúnings crazyness!!!

sjáumst og gangi ykkur vel!! ")









híhíh neei þetta má víst ekki...






búið

Dexter!!!

17. nóvember 2008 klukkan 01:15
OH MY!!!!
Dexter er byrjaður aftur! ég ELSKA þessa þætti.. og ég ELSKA skjá einn!! ")



úúfff hann er nú dáltið heitur haaaa








Ég þarf að:

10. nóvember 2008 klukkan 19:29
1. Skrifa 10 bls. ritgerð í ferðamálafræði um landið Kúbu og skipuleggja námsferð þangað, það er bara gaman! veeiiii!!

2. Gera verkefni um tölulega greiningu á ferðamönnum til Íslands sem er rather tímafrekt og ekkert rosalega spennandi

3. Skrifa 2 bls. greinargerð og hrista fram úr erminni eins og einn góðan fyrirlestur um heilt fræðitímarit innan félagsfræðinnar

4. skrifa 8 bls. ritgerð um tilurð Surtseyjar og tengja saman við allt efnið sem ég hef lært í haust.

5. Búa til fyrirlestur um ritgerðina sem ég VAR að klára í vinnulaginu jibbíííí

6. byrja að lesa fyrir friggin jólaprófin því mér finnst ég ekkert undirbúin og þau nálgast með hverjum deginum sem líður!!!!!


Allt eru þetta hópverkefni sem betur fer og samt ekki nema nr. 5, ég er pottþétt að gleyma einhverju.....

KILL ME.... KILL ME NOW!!



Obama!!

05. nóvember 2008 klukkan 01:35
Ætla að koma með smá blogg.
Ég er alveg orðin föst í Facebook, kann voða lítið á það en er samt alltaf að kíkja og skoða! endalaust hægt að gera og tína sér í þessu... var einmitt að senda jólagjafir á netinu í staðin fyrir að klára ritgerðina mína jaaá!! gaman að þessu...

Hef ekki orkuna í að horfa á kosningavökuna í sjónvarpinu en ég VONA innilega að Obama taki þetta!!!
BNA og...heimurinn bara hefur gott af nýjum og betri forystumanni (er það orð??) anyWHO!!! þetta verður algert brakethrough hvort sem verður en ég segi Obama!! klárlega...

Hvað er að fólki sem ekur á 60 þegar það mátt vera á 80????  ég hreinlega ÞOLI ekki svona lið!!!
og líka fólk sem keyrir á 40 þegar hámarkshraði er 60..... ÞÚ ERT AÐ TEFJA UMFERÐ AUMINGI!!!
jebb... ég er svona ökumaður.. mér finnst ég keyra rosa vel sko en ég er alltaf öskrandi á alla aðra.

Brjálað að gera í skólanum og mikið að lesa.... og ég les og les.... en ég les reyndar bara bækur sem mér finnst skemmtilegar ") t.d. var ég að lesa Dætur Kína sem er mjög áhugaverð!!
og er núna að lesa dagbók Önnu Frank og hún er mjög átakanleg og ég GET EKKI hætt að lesa hana!!!
ég veit hvernig hún endar en ég er alltaf að vona að samt....gerist ekkert "/
svo eru myndir í bókinni og nú er ég búin að "kynnast" öllu fólkinu sem var í felum með henni, og ég hreinlega bara græt þegar ég skoða myndirnar!! er ekkert að skammast mín fyrir það neitt.. þetta er rosa sorglegt!!!
Svo fór ég að skoða húsið sem þau földu sig í með mömmu þegar við fórum til Amsterdam!! shit.. það var rosalegt.... upprunaleg bókahillan sem faldi hurðina að þeim hluta hússins sem þau földu sig í!! en ég væri samt til í að fara aftur og skoða nú þegar ég er búin að lesa bókina!...
Anna Frank var mögnuð persóna, rosalega múdí og hataði alla eða elskaði og hafði mjög sterkar skoðanir. Var mikið að pæla í kynlífi og slíku enda 14 ára á seinasta heila árinu sínu er ég næstum viss um!!

æj já ég þoli ekki hvað ég finn mér alltaf eitthvað annað að gera en læra!! hverslags metnaður er það eiginlega??? ekki mikill finnst mér!!

OOOH BLESS!!!! 

Þingborg

12. október 2008 klukkan 17:46
Jebb ég skellti mér í ferðalag með "Fjallinu" sem er nemendafélagið mitt í hákólanum. ")
Ferðinni var heitið í Þingborg fyrir austan Selfoss, og lögðum við af stað í gær um 2 leytið.

Við Ólöf erum að missa okkur úr spenningi, meira ég samt kannski því hún var nú pííínu þunn greyið mitt





Bergey ofurskutla mætt á svæðið



Markús minn var líka spenntur ")



Eva, Þórdís og Eva tilbúnar í slaginn (eva og eva eru stundum saman í verkefni og það er mjööög fyndð þegar þær eru að kynna sig, já ég heiti eva, og ég heiti eva MÚHAHA)



Hrund mætti hress með bjór í hönd



Einar og Guðný ávallt með góða skapið í farteskinu



Fólkið í rútunni var eiturhresst, söng og trallaði ALLA leiðina..... jebbsííí



nú það var drukkið og sungið, og fyrsta stoppustöðin var á Selfossi svo fólk gæti nú keypt sér aaaaaðeins meira bús fyrir kvöldið og nóttina ") oooooog svo var komið að óvissustoppinu sem var Ölversholt en þar er brugghús í gömlu fjósi. Við fengum s.s. túr um verksmiðjuna og svo máttum við ganga á dæluna eins og við vildum ") fallegt það..... fólk var komið vel í glas

verksmiðjukútarnir eða tankarnir



afurðir verksmiðjunnar en þeir bjórar eru Skjálfti, Móri og jólaöl að mig minnir.



Móri...úúúú en hann er víst að stríða þeim eitthvað stundum í verksmiðjunni og herjar einig á sveitunga.



aaaah en það var nú ljúft að komast út fyrir borgarmörkin og í hreina sveitaloftið ")
sjá hesta í haga og fjöllin í fjarska.... very pretty



svo var ég svo rosa mikið að tala, eða hlusta á einhvern tala að ég hellti úr glasinu á buxurnar mínar heillengi án þess að fatta... very nice jaa



Einar og Markús hressir og sérlega Markús með Móra í glasi.... eða er þetta kannski jólaölið, hver veit???



oog svo nokkrar af okkur aðal skvísunum jájájá.... ansi erum við nú litskrúðugar og hressar











jebb, eftir drykkjuför þessa var haldið í Þingborg þar sem myndataka varð takmörkuð á mínum bæ múhaha....
fengum grillaðan hambó sem var kryddaður í rusl og sósaður í drasl



og hey, hver kannast ekki við að vera kominn í glas, fara í drykkju-boðhlaupa-leik... hlaupa 6 hringi í kringum keilu og spretta að eindalínu, detta og viðbeinsbrotna????
júú það hafa allir lent í þessu, er það ekki Einar?



jebb, mér fannst geeeeeðveikt að vera úti, það var óógeðslega kalt en ferskt, stjörnur og NORÐURLJÓS dauðans!!! SHÆT hvað þetta er geeggjað helvíti..... gosh!! reyndi að taka mynd en ég kann ekkert á þessa bévítans myndavél svo hér kemur ein vel valin af netinu ") váá ég var alveg agndofa yfir þessari fegurð á himninum... gotta love iceland man!






fólk að hlýja sér á grillinu í kuldaum úti



já þetta var aldeilis skemmtileg ferð ") ég skemmti mér drottningalega... EN... þegar leið á kvöldið og ég og Ólöf búnar að sitja að sumbli nokkra stund, taka þátt í slúðri og slíku, ákváðum við að nenna ekki að hangsa alla nóttina í subbulegum íþróttasal þar sem átti að troða 50 manns til svefns, búið að hella niður kók, bjórdósir út um allt og fólk sem var í pottinum rölti bara í hægindum sínum yfir gólfið svo þetta var freeekar nasty svefnstaður að mínu mati! ég var líka komin með nóg af skemmtun í bili svo ein góð vinkona Ólafar sótti okkur og skultaði heim (það voru nú nokkrir sem vildu koma með okkur í bæinn híhíh). var komin um 2 leytið heim og fannst ekkert slor að skríða upp í góða rúmið mitt og vakna brjálæðislega hress og fá morgunmat úr bakaríi beint í æð! ")

Shibbí, þetta var samt rosalega vel heppnuð ferð, skipulögð og vel að öllu staðið ") vei vei veeeeeeiiii ")
ég þakka bara kærlega fyrir mig krakkar mínir ") takk fyrir skemmtilegt ferðalag oooog að lokum vil ég segja.. láttu þér batna Einar. ")

SJÁUMST SÍÐAR KRÓKÓDÍLL....... rímar ekki eins flott á íslensku "/






Kreppan svakalega

09. október 2008 klukkan 21:17

Ég er með bílalán og á hlutabréf í banka sem nú er ríkisrekinn og er alveg að finna fyrir kreppunni en þó ekki eins brjálæðislega mikið og aðrir.

Ég vil bara segja að mér finnst Geir H. Haarde vera búinn að standa sig með prýði!!!
Ég er ferlega ánægð með hann, hann er að bjarga okkur út úr þessu helvíti!!!! kudos for you!!

Það gengur nú víst saga á netinu þar sem Geir kallar einhvern fréttamann fífl og dóna. Ég verð bara að segja að ég lái honum ekki! hann er búinn að vinna baki brotnu og móttökurnar sem hann fær eru unbílívaböl
ÞAÐ ER BARA SATT!!!

jæja.... fólk er ótrúlegt! og sérstaklega á þessum tímum. Það var viðtal við einhverja kjellu niðrí bæ og hún var að fussa og sveia yfir þjónustufulltrúum sem bara hreinlega VILDU ekki hjálpa henni eða aðstoða. hún ætlðai sko bara að taka allt sitt út úr bankanum JIIISÚS!!! þjónustufulltrúar hafa ekkert með kreppuna að gera og auðvitað geta ekki allir bara labbað inn í bankana sína og sagt HEY ég ætla að taka alla peningana mína NÚNA!!!
seriously!!! ég er svo innilega ekki að stressa mig á þessu, ég treysti fólkinu sem er að reyna að koma okkur út úr þessari ferlegu kreppu og ÉG bíð bara róleg ")

hins vegar finnst mér ferlega fúlt að það er búið að reka um 500 manns úr landsbankanum, því þetta fólk er eflaust ekki að fá aðra vinnu!!! og ekki bara þetta starfsfólk heldur bara.....fólk sem er að missa vinnuna sína núna "/ jólin eru að nálgast og þetta er algert HELVÍTI!!!

jæja ég bara hreinlega VARÐ aaaaaðeins að létta á hjarta mínu, það er nú ekki mikið meira sem ég er að spá í.
Eflaust er ég ekki inn í þessu eins og svo margir aðrir og jafnvel er ég að bulla algert kjaftæði en þetta eru mínar skoðanir og ég stend við þær..... nema það komi virkilega góð rök á móti þeim.

bíður einhver betur?

já...sjáumst bara!

vífilfell og vegamót!

04. október 2008 klukkan 11:50
jeeeeebb!!! ")

fórum í vísindaferð á föstudegi góðum, vorum mætt í Vífilfell um hálf 5, þar sem við fengum skoðun um verksmiðjuna og vörugeymsluhúsið VÁÁ SHIT hvað þetta er stórt og mikið! mjög gaman að koma þarna inn... ég er jú mikill viðskiptavinur kók svo þetta var ævintýri líkast fyrir mig haha ")

svo um 6 leytið tops var liðið komið í glas, ég ekki búin að éta neitt yfir daginn og ýkt spennt að fá mér bjór sopa, og ætlaði svo illa að taka fyristu vísindaferðina í gegn. í rútunni klukkan 7 á leiðinni niðrí bæ var ég gersmalega rúllandi og það var mjög gaman, vorum flest orðin frekar svöng svo við fórum nokkur til Ólafar, sem var svo yyyndisleg, að leyfa okkur að koma heim til sín, og pöntuðum pizzu, ætluðum að halda áfram að drekka og skella okkur niðrí bæ...

ég er búin að komast að því að ég verð að snúa ferlinu við. borða fyrst og drekka svo.... ég var gersamlega búin á því klukkan 10, geyspandi eins og enginn væri morgundagurinn, ÞUNN HAHAH og gat ekki hugsað mér bjór og ekki einu sinni KÓK!! uuusss... ég komin heim uppúr 12 og sofnuð um leið og ég snerti koddann!! veeeeel gert ungfrú djammari ársins 2008

ég með eina "matinn" sem ég snerti yfir daginn, ætlaði ekki að sleppa



Markús með gæða rauðvín úr kassa... mmmm súrt og gott "/



ég og svala svala ;) ;) ;) vorum saman í Vogaskóla, en sko ég kann ekki að taka svona sjálfsmyndir, alveg sama hvað, við endum alltaf út í horni á myndinni!!



tók ekki fleiri myndir þetta kvöldið.....great

anyways... svo fór ég á Vegamót sl. þriðjudag og hitti Ryslinge skvísurnar mínar og það var ÓÓGEÐ gaman!!! shæt.... djöfull er ég búinn að sakna stelpnanna minna og ég get ekki lýst þeirri ánægju sem býr innra með mér að vita af þeim öllum saman í bænum!!! GOSH...

Anna M, Þórveig og Anna....



ég og Vala ýkt hressar!!




elskuleg Silla míííín



anna panna ")



þrjár góðar




anna og þórveig, alveg sætastar alltaf hreint!



silla, ég og anna mín



ég vil bara þakka fyrir mig ") þetta var algert æði.... vil gera meira af þessu fyrst þið eruð svona nálægt JIBBÍÍÍ

svo byrjaði bara að snjóa eitt kvöldið!!!!!!!



finnst það alveg pínu kósý EN það er of snemmt fyrir þetta....
er ekki tilbúin að þurfa að labba eins og gömul kjelling yfir svell til að komast í skólann.....

en það er margt á dagskránni...

5 verkefni í gangi núna SHÆT!!!

ELLA AÐ KOMA HEEEEEEIM!!!!!!!!!!

Októberferst JA JA... DAS BOOT DAS BOOT!!!

oooooooooog Þingborg 11. október með Fjallinu JÁJÁJÁ það verður GAMAAAAN!!! hlakka til

og þá ætla ég ekki að vera rúllandi klukkan 7 og farin að sofa klukkan 10 oooonei!!!

Segjum þetta gott í bili!! ")

later